Beinteinn snýr aftur!

22.10.2008 20:46:21 / Harpa

Færsla skrifuð 13. okt

Ég var í hljómfræðitíma seinnipartinn í dag, að reyna að einbeita mér að því að skrifa  upp 4-radda hljóma (sem er mér mjög erfitt þar sem mér finnst nánast ómögulegt að hugsa í f-lykli) og bæla niður í mér þá löngun að sussa á gelgjurnar við hliðina á mér sem skiptust á að tala um a) hvað þær voru heimskar og skildu ekkert hvað þær ættu að vera að gera og b) hvaða stráka þær voru með inni á msn-inu sínu.
Við bættist svo bæling á hlátri sem vaknaði innra með mér eftir að ég uppgötvaði að ég er núna guggan sem er alltaf að fylgjast með og spyrja í tímum (nánast í einkasamræðum við kennarann), koma með mögulegar úrlausnir og horfa illum augum á gelgjurnar sem eru að tala þegar maður á að vera að vinna verkefni!!
...ég hef nefnilega verið akkúrat hinu megin við línuna :$:$

Annars langar mig, svona á veraldravefnum, til að óska Helenu og Heimi, nýbökuðum foreldrum, innilega til hamingju með gullfallega drenginn sinn :haha::haha:


Bætt við 22. okt:
Þegar ég mætti í hljómfræðitíma á síðasta mánudag þá voru gelgjurnar tvær "hættar"!! (set gæsalappir, er ekki viss um að þær hafi hætt af sjálfsdáðum 8|8| ...því hef ég þó aldrei lent í)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 46910
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan