Beinteinn snýr aftur!

25.01.2009 01:19:45 / Harpa

Mér leiðist...

...og 8 1/2 tími eftir af vaktinni :(:(

Þar sem ég er búin að borða rosalega mikið nammi síðustu daga ætli ég verði þá ýkt sæt? (sbr. það að maður er það sem maður borðar)

Gífurlega miklar pælingar í gangi...

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 12:10:47 / Harpa

Þú ert það sem þú borðar

...úff, þá breytist ég í mandarínu innan skamms! 8|

Annars er Páll Óskar snilld í lærdómsparty...mæli með því :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 16:16:45 / Harpa

Óánægja

Mikið svakalega finnst mér tillitslaust af Bandaríkjamönnum að sleppa því að sýna Grey's anatomy bara að því að það er Thank's giving!! Alveg... :whut::whut:

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2008 15:47:26 / Harpa

Lukkudagur

OMG!!! ...ég á ekki orð til að lýsa gleði minni yfir þessari þvílíku hundaheppni!!
Ég fékk aukakex í Toffypops-kexpakka!! ...ég hélt að svona hlutir gerðust ekki :haha::haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 15:00:05 / Harpa

Hvar er metnaðurinn?

Nú er sá tími ársins sem ég neyðist til að fara að lýsa eftir metnaðinum mínum...ergó: ég er að fara í próf! ...í næstu viku!! Nánar tiltekið á næsta þriðjudag 8|8|

Ætli ég hafi ekki týnt honum einvers staðar í allri geðveikinni síðasta vetur...

Komst að því í síðustu viku (þegar vika var eftir af geðkúrsinum) hvernig maður gæti lesið alla textasýnina í sögukerfinu, fyrir þann tíma hafði ég alltaf bara séð nokkrar nótur!!

Annars finnst mér miklu meira spennandi hvað er að gerast í þjóðfélaginu heldur en það að fara í próflestur... og ég á ekki til neitt jólaprófafæði ...ekki einu sinni piparkökur eða vanilluhringi :(:(

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 20:40:59 / Harpa

...

Mikið svakalega finnst mér orðið gaman í hljómfræði!! ...aðallega þó vegna endurtekinna spurninga um í hvaða menntaskóla ég er í eða hvort ég þekki hinn og þennan sem eru í MR eða útskrifuðust í fyrra 8)8) Mikið svakalega hlýt ég að vera ungleg ;);)

Magnað líka hvað klipping getur gert mikið fyrir fólk!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 15:10:22 / Harpa

Jólaandinn

Já...ég get ekki annað sagt en að jólaandinn sé að færast yfir mig :d:d
Fór með mömmu áðan að kaupa aðventuljós, fékk þetta líka fína ljós, hlakka til að geta notað það. Svo er komið jólaskraut í allar búðir, bíð bara eftir að jólalög fara að heyrast í útvarpinu. Þegar ég kom heim áðan sá ég nágrannana á móti uppi á svölum hjá sér að festa niður jólaseríu! Nú get ég fengið jól í augun í hvert skiptið sem ég lít út um eldhúsgluggann :haha::haha:

Annars nálgast prófin, 2 vikur eftir af geðinu og svo próf!! ...þar sem ég á eftir að lesa alveg svakalega mikið ákvað ég í gær að þrífa íbúðina og ganga frá flöskum og dósum sem hafa verið að safnast upp inni í þvottahúsi síðan við fluttum inn. Merkilegt hvað maður finnur sig tilneyddan til að gera margt annað en að læra þegar maður þarf virkilega að fara að setjast niður til að læra :$:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 21:38:43 / Harpa

Magnað!

Tekið uppúr taugalæknisfræðibókinni sem ég er að glugga í fyrir verklega prófið: ,,...evidence for the former hypothesis [önnur af 2 ráðandi kenningum um orsök MS] is derived from an Icelandic study..." ...litla Ísland, í bók um taugalæknisfræði :haha::haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 21:44:15 / Harpa

Skemmtilegheit

Ég sat í rólegheitum við skrifborðið að læra við ljúfa tóna Emilíönu Torrini þegar dyrabjallan hringdi, ég tók upp tólið og sagði: ,,Halló“ og þá var svarað: ,,Viltu ríða?“ ...what?! Þetta hverfi sem ég bý í er yndislegt, þú veist aldrei hverju þú átt von á!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 21:02:03 / Harpa

Leiðindi

Mikið svakalega er það leiðinlegt að komast að því enn eina ferðina að eitthvað sem maður kunni uppá 10 fyrir tæpu ári síðan kann maður ekki rass í bala í dag! ...ekki beint plús fyrir sjálfsálitið, en það er víst bara eitt sem hægt er að gera í því, setjast niður og rifja það upp :$:$ Ætli það sé lífsferill læknanema? ...eða lækna yfir höfuð?

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 20:46:21 / Harpa

Færsla skrifuð 13. okt

Ég var í hljómfræðitíma seinnipartinn í dag, að reyna að einbeita mér að því að skrifa  upp 4-radda hljóma (sem er mér mjög erfitt þar sem mér finnst nánast ómögulegt að hugsa í f-lykli) og bæla niður í mér þá löngun að sussa á gelgjurnar við hliðina á mér sem skiptust á að tala um a) hvað þær voru heimskar og skildu ekkert hvað þær ættu að vera að gera og b) hvaða stráka þær voru með inni á msn-inu sínu.
Við bættist svo bæling á hlátri sem vaknaði innra með mér eftir að ég uppgötvaði að ég er núna guggan sem er alltaf að fylgjast með og spyrja í tímum (nánast í einkasamræðum við kennarann), koma með mögulegar úrlausnir og horfa illum augum á gelgjurnar sem eru að tala þegar maður á að vera að vinna verkefni!!
...ég hef nefnilega verið akkúrat hinu megin við línuna :$:$

Annars langar mig, svona á veraldravefnum, til að óska Helenu og Heimi, nýbökuðum foreldrum, innilega til hamingju með gullfallega drenginn sinn :haha::haha:


Bætt við 22. okt:
Þegar ég mætti í hljómfræðitíma á síðasta mánudag þá voru gelgjurnar tvær "hættar"!! (set gæsalappir, er ekki viss um að þær hafi hætt af sjálfsdáðum 8|8| ...því hef ég þó aldrei lent í)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 20:06:50 / Harpa

H.A.M.

Úff...var búin að gleyma hvað ég á til að verða stressuð við það að spila fyrir annað fólk!!
Ég fór á svona nemenda-spilerí áðan, með part úr 2. sónötu e. Bach, með bara jákvæðu hugarfari. Þess vitandi að ég er nú að koma úr 2ja ára pásu og hef spilað í u.þ.b. 3-4 vikur. En samt...þegar ég stóð fyrir framan samnemendur mína og byrjaði þá vildi boginn ekki haldast á strengjunum, ég stífnaði öll upp og þetta var eiginlega bara hræðilegt!! 8|8| Varla mönnum bjóðandi...

En ég meina, hey!! ...ég lifði þetta af og er ekki verri manneskja fyrir vikið, ég ætla því að halda áfram með því hugarfari að þetta geti ekki farið annað en upp á við :haha::haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 20:30:01 / Harpa

Gleðifréttir!!

Grey's anatomy er að byrja aftur á næsta fimmtudag...vúhú!! :haha::haha:

Þar sem nú er prófatíð hjá Degi höfum við ekki getað eytt miklum tíma saman, við áttum því rómantískan kvöldverð í matsal LSH, Hringbraut, í kvöld. Ákaflega huggulegt.

Annars verð ég að viðurkenna að það er bara annsi kósí að læra í svona veðri eins og er úti núna...vafin í teppi, með grifflurnar mínar og við undirspil Bubba. Maður ætti kannski að bæta við heitu súkkulaði...

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 22:02:00 / Harpa

Nú var ég aftur aldeilis illa svikin...

Þar sem ég keypti íbúð í vor þá hefur fjárhagurinn ekki beinlínis blómstrað síðustu misseri, ekki það ég hef svo sem nóg ofan í mig...en kannski ekki á.
Það vildi svo til að ég var á rölti um í Smáralindinni um daginn og rakst á þessi svakalega fínu stígvél...ekta leður á spottprís!! Eftir smá umhugsun ákvað ég að svona kostaboð býðst nú ekki á hverjum degi og þar sem ég hefði akkúrat verið að leita mér að nákvæmlega svona stígvélum í allt sumar þá yrði ég bara að kaupa þau. Ég mátaði í snatri...smellpassaði...og svo var kortið straujað. Ég keypti líka svona leðursprey til að verja þau fyrir bleytu og spreyjaði þau samviskusamlega þegar heim var komið. Svo um kvöldið átti nú að prufa stígvélin þar sem ég var á leiðinni í party, ég valdi meira að segja dressið með tillit til stígvélanna.
Svo þegar ég var tilbúin og ætlaði að klæða mig í stígvélin góðu komst ég að því, mér til mikillar furðu, að ég hafði keypt tvenn vinstri-stígvél!! 8|8|

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 21:39:58 / Harpa

Breytingar...

Það má með sanni segja að það séu breytingar í loftinu. Skólinn byrjaður...nýtt fag, ný deild, meira að segja nýtt hús! Einnig breytingar hjá mér...ný klipping, ný gleraugu og gallblöðru-laus! :haha::haha:

Fyrsti dagurinn og ég var til fimm í dag...byrjar vel :$:$

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 48332
Dagatal
júlí - 2010
S M Þ M F F L
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNæsti
Klukkan